Sunday, October 5, 2008

Þetta hefur verið litlaus dagur. Ég hef húkt innandyra til að ráða endanlega bug á flensunni. Síðan asnaðist ég til að horfa á kvöldfréttirnar áðan og kvíðaverkurinn gaus upp. Best að fara aftur í fréttabindindi.

Saturday, October 4, 2008

Það er undarlega fallegt veður. Snjóbráðin hækkar í hjólbörðunum fyrir utan gluggann. Ég er enn á náttfötunum, raddlaus með hita, en ætla aftur í kuldagallann til að fara út með Kríu. Hún þarf hreyfingu og það er ekki laust við að ég þurfi svoleiðis líka.

Ég hef ekki hlustað á fréttir í sólarhring og líður strax miklu betur. Hjá mér er kreppan búin. Það var enginn danskur Klovn í sjónvarpinu síðasta fimmtudag. Í staðinn fengum við íslenskan sirkus sem minnti á Sirkus Billy Smart á aðfangadag í gamla daga þegar biðin var svo löng og ekkert var leiðinlegra en Sirkus Billy Smart en það var ekkert annað í boði.

Monday, September 15, 2008

Það er ekki líklegt að hér verði mikið bloggað á næstunni. Lesandinn er beðinn velvirðingar á því.

Tuesday, September 9, 2008

Hef verið að hlusta á Darkness on the Edge of Town með Bruce Springsteen í bílnum. Hún er síðan 1978. Þrjátíu ár síðan ég keypti vínylinn í Kaupfélaginu og féll í stafi yfir Racing in the Street og fleiri perlum. Furðulegt hvað tíminn líður en platan stenst vel tímans tönn.

She sits on the porch of her daddy's house
But all her pretty dreams are torn
She stares off alone into the night
With the eyes of one who hates for just being born
For all the shut down strangers and hot rod angels
Rumbling through this promised land
Tonight my baby and me we're gonna ride to the sea
And wash these sins off our hands

Uppáhaldið mitt skoðar fjörugrjót á Hjalteyri.

Monday, September 8, 2008



Kría mín við Hlíðarvatn föstudaginn 5. september, rétt áður en hún rauk í rollurnar og hleypti öllu í bál og brand í Selvoginum.
Farfuglarnir safnast saman, fljúga í hópum og stefna suður á bóginn. Það er einhver tregi yfir því öllu saman, alveg eins og í þessu fallega lagi sem Shane MacGowan og Nick Cave syngja saman. I see friends shaking hands, saying "how do you do", they're really saing "I love you".